top of page
Image by Baim Hanif

NÁMS- OG STARFSRÁÐGJÖF

Hefur þig lengi dreymt um að fara í nám eða skipta um starf en veist ekki hvaða skref þú þarft að taka? Ertu jafnvel nú þegar í námi og átt erfitt með að ná utan um lærdóminn? Standa aðrar hindranir í vegi fyrir því að þú finnir ánægju á náms- eða starfsferli? Náms- og starfsráðgjöf gæti þá hentað þér vel. Þar færðu faglega aðstoð við að greiða úr flækjum, ná áttum, finna styrkleika og vinna úr hindrunum.

Gengur barninu þínu illa að fóta sig í skólanum sínum? Stendur það illa félagslega eða jafnvel námslega? Verður barnið þitt fyrir einelti? Ert þú ráðalaus og átt erfitt með að átta þig á því hvaða þjónusta er í boði? Hjá Samstíga er hægt að fá ráðgjöf varðandi grunnskólagöngu barna. Hægt er að panta viðtal þar sem foreldrar fá fræðslu um skólakerfið og þá þjónustu sem það býður upp á. 

bottom of page