top of page

SAMSTÍGA
FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ OG RÁÐGJÖF

Image by Javier Allegue Barros

SAMSTÍGA

Hjá Samstíga er boðið upp á fjölskyldumeðferð og parameðferð sem og náms- og starfsráðgjöf og/eða ráðgjöf vegna skólagöngu barna á grunnskólaaldri.
Stofnandi Samstíga er Anna Jóna Guðmundsdóttir, fjölskyldufræðingur og náms- og starfsráðgjafi. Hún hefur lengi haft áhuga á að vinna með fjölskyldum og einstaklingum í að átta sig á eigin hindrunum og takast á við þær. Þess vegna stofnaði hún Samstíga.
Meginmarkmið Samstíga er að styrkja fjölskyldur og einstaklinga í því að takast á við hin ýmsu vandamál fjölskyldunnar ásamt því að efla samskiptahæfni og tengsl fjölskyldumeðlima.
Anna Jóna er líka náms- og starfsráðgjafi og hefur góða reynslu af því að vinna með börnum, unglingum og fullorðnum á því sviði. Nám og störf geta haft mikil áhrif á lífið en þar geta oft legið margar hindranir. Hjá Samstíga er því líka hægt að fá ráðgjöf varðandi nám- og starfsferil.

Um Önnu Jónu

Anna Jóna hefur um 13 ára starfsreynslu í grunnskóla. Þar hefur hún starfað bæði sem kennari og náms- og starfsráðgjafi. Hún hefur mikla reynslu af að vinna með fjölskyldum, börnum og ungmennum. Einnig hefur hún reynslu af því að veita náms- og starfsráðgjöf til fullorðinna. Anna Jóna starfar í dag í barnaverndarþjónustu samhliða viðtölum sem hún tekur hjá Samstíga. Í barnaverndarþjónustunni hefur Anna Jóna aðstoðað foreldra í að styrkja foreldrafærni þeirra, stutt fjölskyldur með samskiptavanda, erfiðleika í tengslum við skóla barna og veitt unglingum og ungmennum stuðning í formi viðtala og/eða ráðgjafar. 

Árið 2018 hóf hún nám í fjölskyldumeðferð við Endurmenntun Háskóla Íslands. Á námstímanum tók hún viðtöl við pör, einstaklinga og fjölskyldur. Hún lauk náminu vorið 2020 og hefur boðið upp á viðtöl síðan þá. Hún ákvað í kjölfar námsins að stofna Samstíga. Síðan Samstíga varð að veruleika hefur Anna Jóna tekið á móti fjölskyldum og pörum og unnið með samskiptaörðugleika, styrkja foreldrafærni foreldra, hegðunarvanda barna sem og vanda varðandi grunnskólagöngu, svo sem eins og einelti, skólasóknarvandi og erfiðleikar í samskiptum heimilis og skóla. 

Anna Jóna hefur góða samskiptafærni, leggur mikið upp úr að nálgast fólk af virðingu og samkennd og hefur einlægan áhuga á fólki og því að láta gott af sér leiða.

bottom of page